Námskynning fyrir foreldra nemenda í 1. bekk

Kæru foreldrar og forráðamenn í 1. bekk

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á námskynningu 1. bekkjar þann 15. september kl:17:00-20:00 í heimastofum árgangsins.

Það eru spennandi tímamót að hefja grunnskólagöngu og því viljum við eiga góða kvöldstund saman þar sem við förum yfir veturinn, gæðum okkur á léttum kvöldverði og fáum fróðleg og gagnleg innlegg frá fólkinu sem kemur að námi og velferð barnanna ykkar.

Á námskynningunni muna bekkjarkennarar kynna starfið, skipulagið og helstu áherslur í árganginum í vetur. Sálfræðingur skólans mun fjalla um þessi spennandi tímamót að hefja grunnskólagöngu og áskoranir sem fylgja þeim. Sérkennari mun ræða um mikilvægi íslenskunnar í námi og hvernig íslenskukennsla fyrir nemendur með íslensku með annað mál er háttað.

Einnig verður sagt frá starfsemi og skipulagi Stjörnunnar eftir að skóladegi líkur , auk þess sem formaður foreldrafélagssins mun segja stuttlega frá stafri félagsins og samstarfi foreldra. 

Um klukkan 18:00 verður boðið upp á léttan kvöldverð og gefst tími til að ræða saman og kynnast betur. 

Við hlökkum til að hitta ykkur og eiga gott samstarf við ykkur í vetur.

Bestu kveðjur, 

Bergdís, deildarstjóri Kópavogsskóla