Skólabyrjun haustið 2026

Nú hallar sumri og senn líður að skólabyrjun.

Nýir nemendur sem sækja munu 2.-10. bekk verða boðaðir á fund með sínum umsjónarkennurum fimmtudaginn 20. ágúst kl. 15 í sal skólans.

Umsjónarkennarar 1. bekkjar munu boða foreldra í einstaklingsviðtöl með börnum sínum sem munu fara fram mánudaginn 24. ágúst og þriðjudaginn 25. ágúst.

Skólasetning verður þriðjudaginn 25. ágúst n.k. og verður tekið á móti nemendum í sal skólans samkvæmt eftirfarandi skipulagi:

  • 8:30 2.- 4. bekkur
  • 9:00 5. - 6. bekkur
  • 9:30 7. - 10. bekkur

Námsefniskynning verður strax að lokinni skólasetningu í umsjónarstofum og við hvetjum alla foreldra til þess að mæta. Þar verður farið yfir skólaárið framundan og foreldrum gefst þar tækifæri til þess að hitta kennara og ræða saman. Við hvetjum sem allra flesta til þess að koma gangandi í skólann þennan dag.

 

Námsefniskynning fyrir foreldra 1. bekkjar verður auglýst síðar en eins og hefð er fyrir verður haldinn súpufundur og fræðsla til foreldra.

Á skólasetningardegi, 25. ágúst á milli kl. 16:00-18:00 verður hausthátíð foreldrafélagsins á skólalóðinni sem verður nánar auglýst síðar.

 

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 26. ágúst.

 

Foreldrar nemenda í 1.-4. bekk eru hvattir til þess að skrá börnin sín í frístund á vala.is.