Kæru foreldrar/forráðamenn
Verðandi nemendur í 1.bekk í Kópavogsskóla eru boðnir hjartanlega velkomnir í skólann.
Nú styttist í Vorskólann okkar og hlökkum við til að hitta frábæru börnin sem ætla að hefja grunnskólagöngu sína hjá okkur í Kópavogsskóla. Börnin mæta þann 20. maí ásamt foreldrum sínum í aðalandyri skólans og þaðan í salinn okkar. Í salnum verður börnunum skipt í 2 hópa og fylgja þau svo kennurum sínum í anddyri 1. bekkjar þar sem þau geyma yfirhafnir og skó en fara síðan í kennslustofur til að vinna verkefni og borða nesti ( ávexti, sem þau hafa með sér í nestisboxi og vatnsbrúsa með vatni) .
Foreldrar fá svo tækifæri til að ganga um skólann og skoða hann með deildarstjóra þegar börnin hafa farið upp í stofur, að loknum skóladeginum kl: 15:30 sækja foreldrar þau í anddyri 1. bekkjar.
Þann 21. maí mæta börnin svo beint í anddyri 1. bekkjar þar sem kennararnir taka á móti börnunum.
Þann sama dag stendur foreldrum til boða að koma í sal skólans frá kl: 15:00 - 15:30 en deildarstjóri og forstöðumaður frístundar svara þeim spurningum sem upp vakna hjá foreldrum en frekari kynning á skólastarfi næsta vetrar verður síðan í haust.
Að lokum taka foreldrar á móti börnum sínum kl:15:30 í anddyri 1. bekkjar en kennarar og stuðningsfulltrúi fylgja hópnum til foreldra sinna í lok dags.
Með bestu kveðju og tilhlökkun að fá bæði nýja nemendur og foreldra til okkar
Bergdís Finnbogadóttir, deildarstjóri í Kópavogsskóla
Ps: einnig er verðandi nýnemum boðið í pylsupartý þann 5.júní, milli klukkan 11:00-11:30 en þá er íþróttadagur hjá okkur hér í skólanum sem endar í pylsupartýi.