Vorskóli Kópavogsskóla verður 20. og 21. maí

Verðandi nemendur í 1.bekk í Kópavogsskóla eru boðnir hjartanlega velkomnir í skólann.

 

Nú styttist í Vorskólann okkar og hlökkum við til að hitta frábæru börnin sem ætla að hefja grunnskólagöngu sína hér hjá okkur í Kópavogsskóla.   

Vorskólinn verður dagana 20. og 21. maí frá kl: 14:00-15:30 en nánari upplýsingar er að finna í tölvupósti sem sendur hefur verið út til foreldra. 

 

Við hlökkum til að sjá ykkur í Vorskólanum!