Dagur íslenskrar tungu

Í dag, 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, héldu átta nemendur úr 7. bekk Kópavogsskóla af stað í snjónum yfir á leikskólann Kópahvol, þar sem þau lásu bækur fyrir leikskólanemendur.

Erfitt var að greina á milli þess hverjir höfðu meira gaman af upplestrinum, okkar nemendur eða nemendur leikskólans.

Á þessum degi hefst einnig formlegur undirbúningur fyrir Stóru upplestrarkeppnina, þar sem tveir fulltrúar skólans munu keppa fyrir hönd Kópavogsskóla við fulltrúa annarra grunnskóla bæjarins þann 4. mars 2027.