Í febrúar síðast liðnum tóku 154 nemendur úr átta skólum á höfuðborgarsvæðinu þátt í stærðfræðikeppni í Borgarholtsskóla og var það metfjöldi. Skólarnir sem tóku þátt komu flestir úr nágrenni Borgarholtsskóla, Mosfellsbæ, Grafarvogi, Grafarholti og Úlfarsárdal en einnig komu nemendur frá Norðlingaholti, Árbæ, Breiðholti og Kópavogi og skráði Andri stærðfræðikennari nokkra nemendur til keppni úr 9. og 10. bekk Kópavogsskóla. Keppendur úr áttunda bekk voru 50 talsins, 48 úr níunda bekk og 56 úr tíunda bekk.
Þriðjudaginn 3. mars voru veittar viðurkenningar fyrir efstu 10 sætin í hverjum árgangi fyrir sig. Þar átti Kópavogsskóli fjóra fulltrúa og fengu Stefán Dagur Pálmason í 9. bekk og þau Jörundur Elí Björnsson, Kristján Guðni Vilhjálmsson og Valería Dögg M. Björgvinsdóttir í 10. bekk öll viðurkenningu. Við óskum þessum nemendum Kópavogsskóla innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.