Skólaráð og foreldrafélag Kópavogsskóla hafa samþykkt breytingu á skólaslitum hjá nemendum í 1.-9. bekk í vor þar sem stór hluti starfsmanna í Kópavogsskóla eru að fara í námsferð erlendis. Skólaslitin áttu að vera samkvæmt skóladagatali að morgni 10.núní en færast til 9. júní.
9.júní er merktur á skóladagatali sem skertur/uppbrotsdagur hjá nemendum og mun skólinn hefjast samkvæmt stundatöflu þann dag en ljúka klukkan 11:55. Frá þeim tíma fara þeir sem eru skráðir í frístund þennan dag í frístund en aðrir nemendur fara heim. Skólaslitin verða síðan kl:15:00 hjá nemendum í 1.-9. bekk í kennslustofum hjá umsjónarkennurum og útskrift hjá 10. bekk verður kl: 16:30 í sal skólans.