Þann 9. júní verða skólaslit og úrskrift í Kópavogsskóla. Nemendur í 1.-9. bekk mæta á hefðbundnum tímum að morgni til og eru í skólanum til hádegis. Skólaslit verða með eftirfarandi hætti:
Kl: 15:00 eru skólaslit hjá 1. - 9. bekk í heimastofum árganga.
Kl: 16:30 er útskrift hjá 10. bekk í sal skólans.
Skólasetning verður þriðjudaginn 25. ágúst.
Kl. 8:30. 2. - 4. bekkur
Kl. 9:00. 5. - 6. bekkur
Kl. 9:30. 7.-10. bekkur
Námsefniskynning verður strax að lokinni skólasetningu í umsjónarstofum og hvetjum við því foreldra til þess að fjölmenna í skólann á þessum degi.
Foreldrar nemenda 1. bekkjar verða boðuð í einstaklingsviðtöl dagana 25. og 26. ágúst.
Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 26. ágúst fyrir nemendur í 2.-10. bekk og fimmtudaginn 27. ágúst fyrir nemendur í 1. bekk.