Slökkviliðsmenn komu í skemmtilega heimsókn til okkar í 3.bekk í gær. Þeir fræddu nemendur um forvarnir og eldvarnir á heimilum og ræddu um mikilvægi þess að kunna bregðast rétt við ef eitthvað kemur upp á. Nemendur fengu einnig bæklinga, bækur og endurskinsmerki að gjöf.
Það vakti mikla lukku hjá nemendum að fá að skoða sjúkrabíl og slökkviliðsbíl í návígi og kynna sér allan þann tækjabúnað sem þar er að finna. Við þökkum slökkviliðsmönnum kærlega fyrir frábæra heimsókn.