Upplestrarkeppni 7. bekkjar

Í dag, fimmtudaginn 12. febrúar fór fram upplestrarkeppni 7. bekkjar. Þar kepptu tíu nemendur um það að verða fulltrúar skólans í Stóru upplestrarkeppninni sem fram fer í Salnum í mars. Nemendur 7. bekkjar eru margir hverjir virkilega góðir lesarar og var erfitt að velja þá tíu sem kepptu í dag. Sömu sögu var að segja af keppninni í dag, keppnin var mjög góð og óvenjuerfitt að velja tvo aðalmenn og tvo varamenn. Marel Briem og Óskar Sæmundur Sigfússon stóðu uppúr sem sigurvegarar og varamaður þeirra er Dagur Ómarsson. Við óskum öllum keppendum innilega til hamingju með glæsilega frammistöðu í dag og hlökkum til að sjá fulltrúa skólans keppa í Salnum í mars.