Vorskóli

Verðandi nemendur í 1.bekk í Kópavogsskóla eru boðnir hjartanlega velkomnir í skólann.  Nú styttist í Vorskólann okkar en börnin mæta þann 24. maí ásamt foreldrum sínum klukkan 14:00 í aðalanddyri skólans og þaðan í salinn okkar. Í salnum verður börnunum skipt í 2 hópa og fylgja kennurum í anddyri 1. bekkjar þar sem þau geyma yfirhafnir og skó og fara síðan í kennslustofur og fá að vinna verkefni og borða nesti ( ávexti, sem þau hafa með sér í nestisboxi og vatnsbrúsa með vatni ) .

Foreldrar fá nú tækifæri til að ganga um skólann og skoða hann með deildarstjóra, þegar börnin hafa lokið skóladeginum sækja foreldrar þau í anddyri 1. bekkjar. Þann 25. maí mæta börnin svo beint í andyrir 1. bekkjar þar sem kennararnir taka á móti ykkur og börnunum.  

Þann sama dag stendur foreldrum til boða að koma í sal skólans frá kl: 15:00 - 15:30 en deildarstjóri og forstöðumaður frístundar svara þeim spurningum sem upp vakna hjá foreldrum en frekari kynning á skólastarfi næsta vetrar verður síðan í haust. 

Að lokum taka foreldrar á móti börnum sínum kl:15:30 í anddyri 1. bekkjar en kennarar og stuðningsfulltrúi fylgja hópnum til foreldra sinna í lok dags. 

 

Með bestu kveðju og tilhlökkun að fá bæði nýja nemendur og foreldra til okkar í skólann.

 

Bergdís Finnbogadóttir, deildarstjóri í Kópavogsskóla