Fréttir

Vegna ferðalaga um páskana

Grunnskólum lokað

Skólaheimsókn verðandi nemenda í 1. bekk Kópavogsskóla

Kæru foreldrar/forráðamenn barna sem hefja skólagöngu í Kópavogsskóla haustið 2021 Hér á eftir eru upplýsingar um það sem framundan er fyrir verðandi skólabörn í 1. bekk Kópavogsskóla. Hér finnið þið jafnframt upplýsingar um vorskólann sem og frístundaheimilið Stjörnuna sem er lengd viðvera fyrir nemendur eftir að skóla lýkur á daginn. Nemendur sem skráðir eru í 1. bekk haustið 2021 koma tvisvar í heimsókn í skólann nú í vor. Einnig stendur þeim til boða að koma í vorskóla í maí. Við hlökkum til að taka á móti ykkur, eiga gott samstarf og bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í Kópavogsskóla. Sjáumst í skólanum! Bergdís Finnbogadóttir, deildarstjóri