Fréttir

Hverfislöggan kom í heimsókn

Hverfislöggan okkar hér í Kópavogi kom og heimsótti okkur í síðustu viku, fékk sér hádegisverð með nemendum og áttu góða stund. Þau litu svo inn í 1.bekk þar sem þau ræddu um að vera vel upplýst með endurskinsmerkjum og hafa aðgát í umferðinni. Einnig heimsóttu þau 7. bekk og áttu gott spjall.

16. október - fræðsla frá Foreldrahúsi

16. október næstkomandi kl. 17:00–19:00 verður fræðsla fyrir foreldra frá Foreldrahúsi í sal Kópavogsskóla. Við heyrum sífellt oftar af aukinni áhættuhegðun, fikti og neyslu meðal unglinga og ungmenna og því ákváðum við að fá fræðslu hingað í skólann fyrir starfsfólk og foreldra. Því betur sem við erum öll upplýst, þeim mun betur getum við tekist á þegar upp kemur grunur um áhættuhegðun, fikt eða neyslu.