Fréttir

Dagur gegn einelti

9. nóvember fögnuðum við baráttudegi gegn einelti og nýttum við tækifærið til að leggja áherslu á mikilvægi vináttu, virðingar og góðra samskipta. Vinabekkir hittust og áttu saman notalega stund þar sem nemendur unnu að ýmsum verkefnum, meðal annars púsli og spilum. Með þessu fengu þau tækifæri til að eiga samskipti, vinna saman og kynnast enn betur.