Fréttir

Teymiskennsla

Skólasetning 2019

Nemendur Kópavogsskóla mæta á skólasetningu föstudaginn 23. ágúst sem hér segir: Nemendur í 2. - 4. bekk mæta kl. 09:00 í sal skólans Nemendur í 5. - 7. bekk mæta kl. 09:30 í sal skólans. Nemendur í 8. - 10. bekk mæta kl. 10:00 í sal skólans Í framhaldi af skólasetningu fara nemendur í stofur og ræða við umsjónarkennara sína. Fyrsti kennsludagur í 2. - 10. bekk er mánudagur 26. ágúst samkvæmt stundaskrá. 1. bekkur. Haft verður sambandi við foreldra nemenda 1. bekkjar og þeir boðaðir í einstaklingssamtöl 23. ágúst eða 26. ágúst. Frístund er opin fyrir skráða nemendur 26. ágúst en lokað er í Frístund föstudaginn 23. ágúst vegna undirbúnings skólabyrjunar. Þau mæta fyrsta skóladaginn sinn þriðjudaginn 27. ágúst kl. 08:15. (15 mín. seinna en önnur börn til að þau komi inn fyrsta daginn í rólegra umhverfi). Nýir nemendur. Öllum nýskráðum nemendum skólans (öðrum en nemendum 1. bekkjar) er boðið að koma í heimsókn miðvikudaginn 21. ágúst kl. 15 til að hitta umsjónarkennara og ganga um skólahúsnæði. Námsgögn: Kópavogsbær útvegar námsgögn fyrir alla nemendur nema skólatöskur, íþróttafatnað og góð heyrnatól (sem ná yfir eyrun) vegna vinnu með snjalltækjum. Það þurfa foreldrar að kaupa fyrir börn sín.

Sumarlokun

Útskriftarhátíð 10. bekkjar 2019

Fjölgreindaleikar

Útskrift 10. bekkjar og skólaslit.

Sprotasjóður styrkir tvö verkefni

Fjölskylduhátíð foreldrafélagsins

Vorskipulag

Skóladagatal 2019-2020